Úlfar - Ragga Dís - Myndir

föstudagur, nóvember 11, 2005

 

Föstudagur

Í dag er föstudagur. Það er alltaf einhvern vegin svona spenna í manni þegar helgin nálgast. Mamma og Pabbi voru að fara til útlanda og þá ætlum við Úlfar að nýta tíman og lifa eins og fjölskylda í eigin húsnæði á meðan. hehe. (Tek það alltaf skýrt fram að samveran gengur vel en nú verðum við ein í kotinu og það er líka notalegt). Í kvöld koma Svenni og Kolla í mat og kannski skellum við okkur í pottinn. Þetta verður örugglega eðal kvöld með öllu tilheyrandi. Úlfheiður ætlar að gista hjá Áshildi frænku sinni í Vogunum. Þau frændsystkynin verða örugglega mestu mátar og það verður gaman að heyra hvernig gengur.

|

mánudagur, nóvember 07, 2005

 

Flökurt smökurt

Flökurleiki að hrella mig í kvöld. Gat samt gúffað í mig hamborgara í kvöldmat. Það er ekkert smá sem ég get borðað þessa dagana og svo skil ég ekkert í því að ég sé ekki léttari en ég er. hahahaha. Ekki að ég sé að reyna að létta mig eitthvað, bara svona suma daga finnst mér ég vera fín og aðra er ég eins og fíll. Vonandi er þetta bara eitthvað bull í mér og ég vakni hress í fyrramálið.

|

laugardagur, nóvember 05, 2005

 

Yndislegur ákveðin klifruköttur

Hef ekki komist í gírinn enn þá. Ætli einhver lesi þetta lengur??? það skiptir þá ekki máli því ég ætla bara að skrifa mér til gamans. Við erum núna búin að vera búsett hjá mömmu og pabba síðan í ágúst. Það gengur furðu vel. Ég er þó farin að kíkja oftar á fasteignablaðið og farin að láta mig dreyma um að hin og þessi húsakynni séu mín. Nú það kemur að því að sá draumur rædist og þá á bara eftir að njóta.
Úlfheiður er yndislegur ákveðin klifruköttur. Hún vill helst vera uppí tröppum eða sófa og segir ákveðið já eða nei ef að hún vill fá eða ekki fá. Hún hefur einnig tekið uppá því að væla bara í hljóðum en ekki í andliti svona "fake" hahahahaha, hún er allavega mjög fyndin. Hún er farin að kjafta á einhverju máli sem engin skilur nema hún og reytir hún af sér brandarana og hlær. Ætli hún sé ekki bara fyndnasta barn Íslands enda ekki langt að sækja húmorinn.
Nú er ég farin að hlakka til:
- jólanna
- Danmerkurferðar
og síðast en ekki síst sumarsins
það er búið að vera svolítið kalt hér á landi en það hlýnaði í dag.
Við fórum í dag í svona laugardagstúr í Perluna. þar gæddum við okkur á kaffi og Úlfheiður naut sín við að hlaupa í hring og var alsæl úti á svölunum í góðu veðri og með Útsýni yfir allt.

Ég reyni að setja inn nýjar myndir sem fyrst og aldrei að vita nema að maður sé komin í blogggírinn.

|

miðvikudagur, október 05, 2005

 

já ......................

Ragnar Otti eins árs í dag. Ég búin að liggja í gubbupest og ætla að hætta því núna og halda áfram með lífið. Hversdagsleikinn svolítið að ná tökum á mér en ætla að reyna að bæta úr því með því að mæta á fimleikaæfingar á þriðjudagskvöldum ásamt gömlum dísum og eitthvað fleira spennó. Það eru komnar nýjar myndir, endilega kíkið. Ég vil bara þakka fyrir allar afmæliskveðjurnar til skvísunnar.
þangað til næst..................

|

mánudagur, september 26, 2005

 

Úlfheiður orðin eins árs

Það er ótrúlegt hvað þetta ár er búið að líða. Svo ótrúlega margt búið að gerast. Við héldum síðan 30 manna veislu fyrir dömuna í gær. Ég veit að það er margt fólk, en þetta var einungis nánasta fjölskylda og vinir. Hún hafði náttúrulega ekkert áhuga á pökkunum sem slíkum heldur vildi helst vera að skoða gestina og blöðrurnar glöddu litla skinnið óendanlega mikið. Hún fékk þó margar góðar gjafir og þökkum við fyrir okkur.
Það gengur vonum framar hjá dagmömmunni. Hún er hætt að gráta þegar að ég skila henni af mér og líka þegar ég sæki hana. Hún tók þó uppá því á fim. og fös. að gráta yfir því að ég væri að sækja hana og vildi bara vera lengur. það þótti mér svolítið svindl.
Við erum búin að koma okkur vel fyrir í litla afdrepinu okkar hér í "Efsta" og líður bara ágætlega. Við erum líka búin að eignast fjölskyldubílinn. Opel Astra, alveg kraftlaus en mjög sparneytinn(Úlfars style). Nei grín, fínn bíll sem fleytir litlu fjölskyldunni áfram með miklu farangursrými. Ætti ég ekki bara að fara í sölumennsku og selja þessa vöru?
Reyni fljótlega að setja inn myndir. Ég er bara eitthvað svo löt í þessu. Ætla samt að fara að herða skrifin. Vil alls ekki missa tengslin og þá aðallega við ykkur öresunds k. búar.

|

laugardagur, september 10, 2005

 

Ætla á Depeche Mode 25 febrúar

Dögg ég er að kenna íþróttir og sund!
Já það er bara nokkuð gaman. Leiðinlegast er að skilja Úlfheiði eftir hjá dagmömmu sem ég er þó mjög ánægð með. Æ hún er bara svo mikið grey og fer alltaf að gráta þegar ég fer. Það er svo erfitt. Ég er búin að panta miða á Depeche mode í parken í Köben þann 25 febrúar fyrir mig og Úlfar og get ekki beðið. Þannig að hlakka til að sjá ykkur í febrúar danmerkuvinir mínir. Nú eða um jólin ef að þið komið heim. Var ekki einhver að tala um danskan julefrokost. Hlakka til að sjá krílin. Vá hvað hún Regína litla er sæt á myndunum. Hún er örugglega helmingi meira krútt ef að maður sér hana í raun og er það varla hægt. Lífið gengur bara sinn vanagang. Hér er búið að vera fallegt veður undaðfarið en kalt. Nú er yndislegt rokrigningarveður. Verð að vera jákvæð. Maður er sko ekki kölluð "pollýana" fyrir ekki neitt.
Væri til í að hreyfa mig meira, því ekki geri ég neitt af því. Það kemur ikke ogsá.

|

mánudagur, ágúst 29, 2005

 

Island fagra kalda Island

Það er svo margt sem ég gæti skrifað núna. Við erum flutt heim og búin að koma okkur ágætlega fyrir. Sennilega fáum við dótið okkar úr gámnum í dag og það verður ágætt. Svolítið vont að vera ekki með allt sitt dót. Ég er byrjuð að kenna á fullu og líkar það mjög vel. Úlfheiður er farin að labba á fullu og er ótrúlega dugleg. Hún er samt veik núna og er það ekki bara týpískt svona eftir vikuna hjá dagmömmunni hahahahaha. Ég er mjög ánægð með dagmömmuna og það gengur mjög vel.

Kæru félagar í Danmörku ég get ekki sagt að ég sakni ykkar ekki neitt því þá væri ég að ljúga. Sendi mínar bestu kveðjur til ykkar og sjáumst vonandi brátt aftur.
Hins vegar er ég sátt við allt og það er bara eitthvað svo mikið að gera að ég er komin með kvíðahnút og frunsu og íslenska samfélagið farið að herja á með trompi. Það er óneytanlega meiri hraði hér.
Þetta er líka kaldasta land í veröldinni að mér finnst, því það hefur ekki verið hægt að sleppa flíspeysunni síðan við komum. Talandi um það. Alveg róleg með veðrið sem var þegar við lentum. hahahahaha við áttum ekki til orð yfir suddanum og rokinu. Úlfheiður gat ekki andað á leiðinni út í bíl. Við gátum ekki annað en hlegið.

Það er samt gaman að vera komin heim á meðal vina og ættingja þó við séum nú ekki búin að hitta marga þá höfum við líka allan heimsins tíma í það. Já vona að ég verði ekki svona löt á næstunni í skriftum og jábbb..........jú við fórum í sumarbústað um helgina, rétt fyrir utan Flúðir. Það jafnast ekkert á við það að fara uppí sumarbústað á Ísl.

Duglegasta ég hjóla alltaf í vinnuna og heim en það er óneytanlega erfiðara en að hjóla í Dk. Alltaf nær dauða en lífi á leiðinni heim upp brekkuna.

|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?